Leikarinn og hláturjóginn Finnbogi hefur síðan vorið 2026 verið á hörku flugi með skemmtifyrirlesturinn, Af hverju hlæjum við… ekki oftar?
Í fyrirlestrinum sem er á köflum einskonar fræðandi uppistand, fer Finnbogi yfir hvað gerist í líkamanum, huganum og í samskiptum okkar við aðra þegar við hlæjum? Hvaða áhrif hefur góður hlátur á hópavinnu á vinnustað, fjölskyldulíf og daglegt líf, eða þá bara þegar við flissum ein með sjálfum okkur?
Og síðast en ekki síst kynnir hann til sögurnar aðferðir sem fá okkur til að hlæja oftar og meira í hinu daglega lífi en þær geta verið mjög áhugaverðar fyrir vinnustaði og hópastarf!
Fyrirlesturinn hefur heimsótt fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einkapartýt og flutt hann í leikhúsinu Tjarnarbíói við frábærar viðtökur.
Finnbogi Þorkell
og
Af hverju hlæjum við… ekki oftar?
“Brilliant viðfangsefni og skemmtilegur fyrirlesari, mikið hlegið. Mjög gott fyrir hópinn okkar, einmitt það sem ég þurfti að heyra!”
Hann hentar fyrir allar gerðir hópa og er einnig boði í samstarfi við Þekkingarmiðlun sem sérhæfir sig í að miðla þekkingu með námskeiðum, þjálfun og fyrirlestrum. Hæg er að bóka fyrirlesturinn eða senda fyrirspurnir hér.
Finnbogi nýtir hér vel reynslu sína sem sem hláturjógaleiðbeinandi og stofnandi og eigandi Gleðismiðjunnar síðan 2019 ásamt Þorsteini félaga sínum. En þeir félagar hafa farið allt land með hláturjóga, hópefli og leiki og kynnst hér um bil öllu sem hægt er að kynnast þegar kemur að þessi dásamlega fyrirbæri, hlátrinum.
Um er að ræða svokallaða fræðandi skemmtun eða “edutainment” á ensku. Í þessum u.þ.b. 50 mínútna fyrirlestri fer Finnbogi einfaldleg á kostum í að miðla áhugaverðum og hagnýtum fróðleik á skemmtilegan og einlægan hátt sem einnig er mikill innblástur fyrir hópastarf, einstaklinga og daglegt líf.
Fyrirlesturinn byggir á fræðilegum grunni sálfræði, núvitundarfræða, taugavísinda, heimspeki, leiklistar og félagsvísinda en Finnbogi fléttar saman þessu fræðum við reynslu sína sem leikari, hláturjógaleiðbeinandi, faðir og manneskja í nútíma heimi og nokkarar óborganlegar dæmisögur fá að fljúga.
Á Bókasafni Kópavogs - Gulur september 2026
“Mjög sterkt hvernig Finnbogi tengir saman fræðilega þekkingu, mannlega reynslu og léttleika. Vekur fólk til umhugsunar um mikilvægi hláturs, tengsla og samskipta í daglegu lífi, ekki síst í starfi með fólki.”
Meðal þeirra staða sem Af hverju hlæjum við hefur heimsótt ásamt því að vera í sýningum í leikhúsinu Tjarnarbíói eru:
Orkuveitan
Matvælastofnun
Hlemmur Haus
Bóksafn Kópavog
Sem og smærri hópa og bjórkvölda.
“Stórkostleg upplifun, hló meira með kærustunni næstu daga eftir. Mæli eindregið með!”
Finnbogi Þorkell Jónsson er maður margra hatta, hann er leikari, fyrirlesari, hláturjógaleiðbeinandi, jógakennari, textasmiður, leiðsögumaður og veislustjóri og hefur rekið Gleðismiðjuna ásamt félaga sínum síðan 2019 og farið með hláturjóga, hópefli og leiki út um allt land.
Útfrá þeirri reynslu gerðist Finnbogi einlægur áhugamaður um þennan dásamlega eiginleika mannsins, hláturinn, kynnti sér efnið rækilega og henti í skemmtifyrirlesturinn Af hverju hlæjum við ?.
Auk þess grípur hann í talsetningu, lestur hljóðbóka, jógakennslu, framkomuþjálfun og smíðavinnu þegar það kallar á hann. Eftir veikindi árin 2022-2026 sem takmörkuðu vinnugetu hans verulega á köflum, reis hann loks upp úr þeim og henti í skemmtifyrirlesturinn Af hverju hlæjum við? sem hlaut strax gríðarlega góðar viðtökur. Nánar um leikarann og listamanninn Finnboga hér.
Finnbogi setur gjarnan áhugavert efni inná instagram, tjekkið á því hér fyrir neðan, velkomið að fylga hér.